Forsíða
Málmey er fyrirtæki sem sérhæfir sig í smíði á vélum og búnaði fyrir fiskvinnslur auk margskonar annara verkefna. Öll hönnun fer fram í Autocad og Autodesk Inventor sem skapar mikla nákvæmni í hönnunar og smíðaferlinu þar sem við bjóðum upp á margskonar heildarlausnir. Við höfum yfir reynslumiklu og hæfu starfsfólki að ráða þegar kemur að allri hönnun og smíði einnig er verkstæði okkar búið fullkomnum vélum og verkfærum sem gerir okkur kleift að takast á við flest öll verkefni. Við höfum unnið verkefni innan hönnunar og smíði fyrir fyrirtæki eins og Marel, Katla Seafood, Samherja, Nesfisk, Haustak og fleiri fyrirtæki innan sjávarútvegsins. Hafðu gjarnan samband og við reynum að finna lausn sem passar þér og þínu fyrirtæki. Til að skoða vélar og búnað sem Málmey framleiðir klikkið á hlekkinn “Vörur” efst hér á síðunni.